Vonast til að snúa til baka í úrslitakeppninni
Sina Schuldt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Danski landsliðsmaðurinn og leikmaður Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni hefur ekkert leikið með félagsliði sínu hvorki í Danmörku né í Evrópudeildinni eftir Evrópumótið sem fram fór í janúar. Þar varð Rasmus Lauge og landar hans í Danmörku Evrópumeistarar eftir sigur á Þjóðverjum í úrslitaleik.

Rasmus Lauge hefur verið að glíma við bakmeiðsli frá því á Evrópumótinu og segist hann enga hugmynd hafa hvenær hann getur snúið aftur til baka á völlinn. Handkastið greindi frá því í febrúar að hann væri með brjósklos.

,,Maður veit ekki hvenær þetta verður búið, því þetta er svolítið óljóst," sagði Rasmus Lauge í viðtali við TV 2 Sport í Danmörku. Hann benti á að það væri mikilvægt að hann væri orðinn 100% heill áður en hann myndi koma til baka.

,,Þetta lítur allt mjög vel út en það er hinsvegar ómögulegt að segja til u hvenær ég sný aftur. Við erum að leggja allan fókus á að ég geti verið með þegar úrslitakeppnin hefst," sagði Lauge að lokum.

Bjerringbro/Silkeborg er í 6.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 23 stig en fjórar umferðir eru eftir af dönsku deildinni. Átta efstu liðin fara í átta liða úrslit sem leikin er í tveimur fjögurra liða riðlum.

Rasmus Lauge verður 35 ára í sumar hefur unnið til sex gullverðlauna með danska landsliðinu á stórmótum en hann er á sínu þriðja tímabili með Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað með Veszprém, Flensburg og Kiel.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top