Bikarmeistarnir fara norður í kvöld og mæta þar nýliðum Þórs sem eru í 9.sæti deildarinnar með 11 stig, stigi á eftir HK sem er í 8.sætinu. Um er að ræða fyrsta leikinn í 20.umferð Olís-deildar karla sem verður leikin í kvöld, annað kvöld og lýkur síðan á föstudagskvöldið með leik Stjörnunnar og KA. Hitað var upp fyrir 20.umferðina í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Ásgeir Gunnarsson og Sigurjón Friðbjörn Björnsson voru gestir þáttarins í Rapyd-stúdíóinu. ,,Er það ekki týpískt Haukarnir að fara norður og tapa? Það er nú ekki lengra síðan en fyrir Final 4 þar sem rætt vorum Hauka sem frekar óstabílerað lið og Gunni Magg. þjálfari Hauka talaði um það í viðtali eftir bikarúrslitaleikinn en þeir náðu tveimur góðum leikjum í röð í bikarúrslitahelginni," sagði Arnar Daði meðal annars og benti á að Þórsarnir eigi Hauka, Aftureldingu og KA eftir. ,,Þórsarana hljóta að kítla aðeins í fingurgóma að vera fá bikarmeistarana í heimsókn þremur dögum eftir bikarúrslitaleikinn?" ,,Þetta er algjört dauðafæri fyrir Þór að sækja stig, miðað við prógrammið sem þeir eiga eftir," svaraði Sigurjón Friðbjörn. ,,Ef Þórsarnir fá núll stig úr þessum leikjum sem þeir eiga eftir, þá yrði það mikið áfall fyrir þá og mikill skellur sem gæti kostað þá það að þeir gætu verið á leiðinni í umspil. Þetta eru allt leikir sem þeir geta sótt sigur í," bætti Arnar Daði við. ,,Við tölum um bikarþynnku af ástæðu,” sagði Sigurjón Friðbjörn og bætti að bikarþynnkan er yfirleitt lengri hjá Vestmannaeyingum heldur en öðrum. Leikur Þórs og Hauka hefst klukkan 18:30 og verður í beinni í Handboltapassanum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.