

Selfyssingurinn, Gunnar Kári Bragason er orðinn löglegur með FH fyrir síðustu þrjár umferðirnar í Olís-deild karla og úrslitakeppnina sem framundan er. Gunnar Kári sem gekk í raðir FH fyrir síðustu leiktíð var lánaður til síns uppeldisfélags, Selfoss í upphafi tímabils en Selfoss eru nýliðar í Olís-deildinni. Gunnar Kári hefur leikið alla 19 leiki Selfoss í Olís-deildinni í vetur og hefur skorað 47 mörk fyrir liðið sem er í 10. sæti deildarinnar með 11 stig, stigi á eftir HK sem er í 8.sætinu og með einu stigi meira en Stjarnan sem er í 11.sætinu þegar þrjár umferðir eru eftir. Selfoss fer í Kórinn annað kvöld og mætir þar HK í leik sem gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Um er að ræða mikla blóðtöku fyrir Selfoss fyrir lokasprettinn. FH fær Aftureldingu í heimsókn á fimmtudagskvöldið klukkan 19:00 en FH er í 2.sæti deildarinnar þremur stigum á eftir Val sem er á toppi deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.