Ekkert bólar á landsliðshópnum – Fara landsleikirnir fram í Kaplakrika?
Johan Nilsson/TT /AFP

Samkvæmt heimildum Handkastsins fara vináttulandsleikir Íslands gegn Svíþjóð fram í Kaplakrika, heimavelli FH í Hafnarfirði. Leikirnir fara fram fimmtudagskvöldið 19. mars og laugardagskvöldið 21.mars.

Gera má ráð fyrir að uppselt verði á leikina gegn Svíum enda er mikill áhugi hér á landi fyrir Strákunum okkar. Lítið hefur þó farið fyrir þessum leikjum og HSÍ hefur ekki enn byrjað að auglýsa leikina, né keppnisstað og hvað þá miðasölu á leikina þó ekki sé nema rúmar tvær vikur í fyrri leik þjóðanna.

Þá bólar ekkert á leikmannahópnum sem Snorri Stein kýs nota í verkefninu en sænski landsliðshópurinn var tilkynntur í síðasta mánuði. Hér er hægt að sjá sænska landsliðshópinn sem kemur til landsins.

Bæði íslenska og sænska landsliðið hafa tryggt sér þátttökurétt á HM á næsta ári eftir góðan árangur á Evrópumótinu í janúar. Ísland endaði í 4.sæti á EM á meðan Svíþjóð endaði í 6.sæti.

Ísland og Svíþjóð mættust í milliriðli Evrópumótsins í janúar þar sem Ísland vann frábæran átta marka sigur, 35-27 en leikurinn fór fram í Malmö í Svíþjóð. Sigur Íslands var mikilvægur partur í því að tryggja sæti í undanúrslitum mótsins.

Ísland lék síðasta æfingaleiki hér á landi gegn Færeyjum í nóvember 2023. Ísland vann báða leikina, þann fyrri með einu marki og þann seinni með fimmtán mörkum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top