Íslenska kvennalandsliðið verður í eldlínunni á Ásvöllum í kvöld klukkan 18:00 þegar liðið tekur á móti Svartfjallalandi í þriðju umferð undankeppni Evrópumótsins. Ísland er án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar en Svartfjallaland er með fjögur stig á toppi riðilsins. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari Íslands hefur valið 16 manna leikmannahóp Íslands fyrir leikinn í kvöld. Arnar hefur þurft að gera tvær breytingar á leikmannahópnum frá því hann tilkynnti hópinn fyrst. Þórey Anna Ásgeirsdóttir dró sig úr hópnum vegna barnsburðar og Alfa Brá Hagalín er meidd. Alexandra Líf Arnarsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir komu inn í hópinn og eru báðar í 16 manna hópnum í kvöld en Thea Imani Sturludóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir eru utan hóps í kvöld. Díana Dögg er enn í Þýskalandi þar sem hún er að fara í lokapróf á föstudaginn en kemur til móts við landsliðið í Svartfjallalandi um helgina fyrir seinni leik þjóðanna. Markverðir Hafdís Renötudóttir, Valur (77/5) Sara Sif Helgadóttir, Haukar (21/0) Aðrir leikmenn Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukar Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe Elísa Elíasdóttir, Valur Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR Lovísa Thompson, Valur Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar Sandra Erlingsdóttir, ÍBV Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.