Bergerud segist ekki vera á leið til Berlínar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Wisla Plock leikur í Zagreb í dag í næst síðustu umferð Meistaradeildar Evrópu en pólska liðið er fast í 3.sæti riðilsins með 15 stig á meðan Zagreb er á botninum með tvö stig.

Norski landsliðsmarkvörðurinn Thorbjørn Bergerud og leikmaður Wisla Plock var í desember í fyrra orðaður við þýsku meistarana í Füchse Berlín. Hann var spurður út í þann orðróm í aðdraganda leiksins gegn RK Zagreb.

,,Alls ekki. Ekki í það minnsta á þessum tímapunkti. Ég er með samning til ársins 2028,“ sagði Bergerud við pólska fjölmiðilinn TVP Sport.

Bergerud er á sínu fyrsta tímabili hjá pólska Wisla Plock, þar sem hann gekk til liðs við eftir þrjú ár hjá norska stórliðinu Kolstad. Hann hefur mikla trú á því að ef félagið heldur áfram að spila eins og liðið hefur gert síðustu vikur að liðið geti keppst um að leika í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar í Köln í lok tímabilsins.

„Ef við stöndum okkur eins vel á vellinum og við höfum gert nokkrum sinnum á þessu tímabili þá getum við tryggt okkur farseðilinn til Kölnar,“ sagði Bergerud.

Leikur Zagreb og Wisla Plock hefst klukkan 17:45 en fjórir leikir eru á dagskrá Meistaradeildarinnar í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top