Þýski landsliðsmaðurinn og leikmaður dönsku meistarana í Álaborg snýr aftur á völlinn í dag þegar Álaborg tekur á móti þýsku meisturunum í Fuchse Berlín í næst síðust umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Juri Knorr hefur verið að glíma við hnémeiðsli eftir Evrópumótið en hann lék þó með Álaborg er liðið varð danskur meistari í febrúar. Hann hefur hinsvegar ekkert leikið í dönsku deildinni né í Meistaradeildinni á nýju ári. Álaborg og Fuchse Berlín mætast í Álaborg klukkan 17:45 í dag en bæði lið eru örugg með sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fuchse Berlín er með einu stigi meira en Álaborg fyrir leikinn í dag og með sigri tryggir liðið sér fyrsta sætið í riðlinum. Álaborg hefur einnig endurheimt danska landsliðsmanninn, Simon Hald sem er í leikmannahópi Álaborgar í leiknum í dag. Simon Hald meiddist í leik Íslands og Danmerkur í undanúrslitum Evrópumótsins og var ekki með Dönum í úrslitaleiknum gegn Þjóðverjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.