Stjarnan tók á móti KA í lokaleik 20.umferðar Olís deildar karla í Garðabænum í kvöld. Í upphafi leiks voru mikil gleðitíðindi fyrir Stjörnumenn því liðið var að endurheimta þrjá lykilmenn í hópinn aftur. Tandri Már Konráðsson, Sveinn Andri Sveinsson og Ísak Logi Einarsson snéru allir á völlinn eftir meiðsli. Gestirnir frá Akureyri byrjuðu leikinn þó miklu betur og tóku frumkvæðið strax frá upphafsflauti og keyrðu misskunarlaust í bakið á Stjörnumönnum trekk í trekk. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var, 11-20, KA í vil og Stjörnumenn vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Ástandið batnaði ekki í síðari hálfleik þar sem KA gekk enn frekar á lagið og skildi heimamenn eftir í reyk. Þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum voru KA-menn komnir 19 mörkum yfir en Stjarnan náði að klóra örlítið í bakkann í restina og lokatölur urðu, 21-38, og 17 marka sigur Akureyringa staðreynd. Með þessum úrslitum eru ÍR-ingar ennþá á lífi í baráttunni um sæti í deildinni en Stjarnan fer einmitt í Breiðholtið á mánudaginn í sannkölluðum stórleik. Benedikt Marinó Herdísarson var markahæstur í liði heimamanna í kvöld með 7 mörk en hjá KA var Einar Rafn Eiðsson markahæstur með 8 mörk. Með sigrinum er KA komið í 4.sætið í deildinni og ennþá á lífi um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.