Baráttan um deildartitilinn harðnar eftir tap Vals gegn Fram
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Valur og Fram mættust í N1 höllinni í kvöld. Fyrir leik var Valur er í efsta sæti deildarinnar með 30 stig á meðan Fram sat í 7. Sæti deildarinnar með 22 stig, öruggir í úrslitakeppnina.

Leikurinn var jafn fyrstu tuttugu mínúturnar en eftir það tók Fram völdin og fóru í hálfleik með sex marka forystu, hálfleikstölur 10-16. Fram sleppti ekki takinu í síðari hálfleik og að endingu sigldi óvæntum 8 marka sigri í höfn, lokatölur 27-35.

Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í leiknum með 10 mörk. Hjá Fram var Ívar Logi Styrmisson markahæstur með 7 mörk. Breki Hrafn Árnason var með 14 varða bolta eða um 34,1% markvörslu meðan markavarslan hjá Val var lakari, 9 varðir boltar samtals hjá Björgvini Páli Gústavssyni og Jens Sigurðssyni eða um 20,5% markvarsla.

Með þessu tapi Vals hefur spennan um deildarmeistaratitilinn aukist, FH er einu stigi á eftir Val eftir sigur þeirra á Aftureldingu fyrr í kvöld. Því missti valur tækifæri til þess að koma sér í þriggja stiga forystu á toppinum og um leið í vænlega stöðu þegar tvær umferðir eru eftir. Fram situr enn í 7. Sæti deildarinnar en hefur jafnað KA af stigum.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top