Fjórir leikir fóru fram í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Stórleikur gærkvöldsins var án efa leikur toppliðanna í A-riðli, Álaborg og Fuchse Berlín sem gestirnir frá Berlín unnu með fjórum mörkum 35-31. Wisla Plock heldur sigurgöngu sinni áfram og unnu átta marka sigur á RK Zagreb. Kielce vann Orra Frey Þorkelsson og félaga í Sporting á heimavelli 39-33 og í Norður-Makedóníu gerðu Eurofarm Pelister og PSG óvænt jafntefli 34-34. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Álaborg - Fuchse Berlín 31-35 RK Zagreb - Wisla Plock 26-34 Eurofarm Pelister - PSG 34-34 Kielce - Sporting 39-33

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.