Þrátt fyrir að Paris Saint Germain hafi verið tveimur mörkum yfir þegar 30 sekúndur voru eftir á erfiðum útivelli í Norður-Makedóníu þegar liðið mætti Eurofarm Pelister í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi dugði það ekki til, til að sækja bæði stigin sem í boði voru. Á einhvern ótrúlegan hátt náði Dejan Manaskov hornamaður Eurofarm Pelister að jafna metin sekúndu fyrir leikslok eftir að Yahia Omar leikmaður PSG hafi klikkað dauðafæri nokkrum sekúndum áður. Stefan Madsen, þjálfari PSG, tók leikhlé þegar 13 sekúndur voru eftir af leiknum og PSG var einu marki yfir. En þá brenndi Yahia Omar góðu færi og heimamenn keyrðu upp í hraðarupphlaup sem endaði með jöfnunarmarki. ,,Ég verð bara að segja að að leikmenn PSG virðast ekki geta stjórnað eigin mistökum, þeir gera svo mörg mistök. Síðan verja Jannick Green og Mikkel Løvkvist ekkert í markinu og reynist liðinu alvarlegt vandamál. Það er erfitt að vinna leik þegar markverðirnir eru með svona lága prósentu markvörslu, það er það fyrsta sem má aldrei fara úrskeiðis," sagði danski sérfræðingurinn Bent Nyegaard. PSG er einungis með 11 stig í riðlakeppni Meistaradeildarinnar eftir 13 umferðir en liðið mætir Magdeburg í lokaumferðinni í næstu viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.