Meistaradeildin: Füchse Berlin tryggðu 1. sæti A riðils og önnur úrslit gærkvöldsins.
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Fjórir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gær. Áttum við Íslendingar einn fulltrúa í eldlínunni í gær.

Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting töpuðu 39-33 í heimsókn þeirra til Kielce. Orri skoraði 1 mark í gær.

Füchse Berlin unnu Álaborg 31-35 þar sem Mathias Gidsel var markahæstur með 8 mörk.Mads Hoxer var markahæstur hjá Álaborg með 8 mörk. Bæði lið voru búin að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit en Füchse Berlin tryggði 1. sæti riðilsins með sigrinum.

Wisla Plock unnu 8 marka sigur á HC Zagreb í Króatíu, 26-34. Melvyn Richardson var markahæstur í liði Wisla Plock með 8 mörk og Giorgi Tskhovrebadze skoraði 6 mörk fyrir HC Zagreb.

Þá skildu Eurofarm Pelister og PSG jöfn 34-34. Filip Kuzmanovski var markahæstur fyrir Eurofarm Pelister með 10 mörk og Yahia Khaled Fathy Omar skoraði sömuleiðis 10 mörk fyrir PSG.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top