Landsmönnum er í fersku minni afar góð frammistaða íslenska karlalandsliðsins í handknattleik á nýliðnu Evrópumóti þar sem liðið endaði í fjórða sæti. Framundan eru nú tveir vináttulandsleikir við Svíþjóð dagana 19. og 21. mars nk. Þessir leikir verða ekki leiknir í Laugardalshöllinni, heldur verður sá fyrri leikinn á Hlíðarenda og sá seinni í Kaplakrika. Kemur það til vegna þess að Laugardalshöllin var þá þegar bókuð undir vörukynningu þessa helgi. Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) og Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hafa í gegnum tíðina reynst það erfitt fá Laugardalshöll undir íþróttaviðburði. Laugardalshöllin var til að mynda ekki laus fyrir bikarhelgi HSÍ í byrjun mars og þurfti að fara með úrslitahelgina á Ásvelli, sem hefur verið raunin undanfarin ár. HSÍ fékk þau svör í fyrra að ekki væri forsvaranlegt að leggja höllina undir bikarkeppnina heila helgi vegna þess að þá féllu niður æfingar í höllinni. Reyndar var höllin leigð undir landsfund Sjálfstæðisflokksins þessa sömu helgi í fyrra og æfingar féllu niður þrátt fyrir allt. Laugardalshöllin gríðarlega mikilvæg Jón Halldórsson sagði í samtali við Handkastið að Laugardalshöllin skipti mjög miklu máli, bæði fyrir leikmenn, þjálfara og þjóðina að spila í Laugardalshöllinni. Hann sagði ennfremur að Laugardalshöllinn væri okkar höll (handboltans) og að þegar ný þjóðarhöll kæmi væri það okkar fasti leikstaður. Hvað er í forgangi? Þegar einn stærsti viðburður HSÍ þarf að víkja fyrir stórum fundi stjórnmálaflokks, blasir svarið við. Íþróttir, hvers heimili Laugardalshöllin er og á að vera, víkja fyrir þeim sem vilja greiða fyrir leigu. Samkvæmt ársreikningi rekstrarfélags Laugardalshallarinnar árið 2024, Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf., sem er í jafnri eigu Reykjavíkurborgar og Samtaka iðnaðarins, voru rekstrartekjur félagsins ríflega 600 milljónir króna á móti launakostnaði upp á ríflega 142 milljónir. Til samanburðar fékk HSÍ tæplega 85 milljónum úthlutað úr afrekssjóði ÍSÍ sama ár og KKÍ ekki nema tæpum 34 milljónum. Samanlagt fengu því þessi tvö sérsambönd, sem eðli máls samkvæmt þurfa að nýta Laugardalhöllina hvað mest, tæplega 119 milljónir úr afrekssjóðnum, sem er talsvert lægri upphæð en launakostnaður rekstrarfélags Laugardalshallar vegna 11 starfsmanna á árinu 2024. Þetta sama ár var tap af rekstri HSÍ tæpar 44 milljónir króna. Landsleikirnir við Svía Hvað landsleikina við Svía í mars varðar sagði verkefnastjóri Íþrótta- og sýningarhallarinnar, í samtali við Handkastið, að beiðni HSÍ um að fá að nýta höllina undir þessa leiki hefði borist of seint og þá hefði þegar verið búið að leigja höllina út. Það virðist því vera á ábyrgð sérsambandanna að óska eftir því að geta nýtt höllina, jafnvel þó að sú ósk sé að koma fram innan útgefins landsleikjahlés í alþjóðlegum handbolta. Það virðist því ekki vera neitt verklag til staðar hjá Laugardalshöll sem tryggir það að sérsamböndin geti nýtt sér höllina í alþjóðlegum landsleikjahléum. Formaður HSÍ, Jón Halldórsson, sagði í samtali við Handkastið að Sólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri HSÍ væri nú búin að bóka Laugardalshöllina undir næstu landsleiki sem er vel en Handkastið veltir því upp hvort það eigi að vera á ábyrgð sérsambandanna að þurfa að sjá til þess? Ný þjóðarhöll Handkastið veltir upp þeirri spurningu hvort búast megi við að sami háttur verði hafður á þegar ný þjóðarhöll verður risin. Verður það tryggt að landsliðin okkar eigi forgang að því að nýta þjóðarhöllina undir landsleiki eða verða landsliðin okkar að víkja ef ný Þjóðarhöll sér fram á tekjur af útleigu húsnæðisins líkt hefur verið með Laugardalshöllina?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.