Fyrr í vikunni var það tilkynnt að þjálfari norska karla landsliðsins, Jonas Wille fái ekki nýjan samning sem rennur út í maí. Norski fjölmiðillinn TV 2 hafa nú bent á fjóra mögulega þjálfara sem gætu tekið við norska landsliðinu af Jonas Wille en allir eru þeir norskir. TV 2 nefnir þá Børge Lund, Kristian Kjelling, Glenn Solberg og Bjarte Myrhol sem mögulega kandídata sem nýja landsliðsþjálfara norska liðsins. Børge Lund er í dag þjálfari toppliðs Elverum í norsku úrvalsdeildinni en hann lék lengi vel með norska landsliðinu en allir fjórir eiga það sameiginlegt að hafa leikið fyrir norska landsliðið. Kristian Kjelling þjálfari Drammen í norsku úrvalsdeildinni er einnig nefndur á blað en hann hefur ekki viljað tjá sig við norska fjölmiðla um starfið. Þá hefur fyrrum landsliðsþjálfari Svíþjóðar og starfandi ráðgjafi í Olympiatoppen í Noregi, Glenn Solberg einnig verður nefndur og þá hefur Bjarte Myrhol þjálfari Runar verið nefndur en hann hefur gefið það út að hann hætti sem þjálfari Runar eftir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.