Færeyingurinn í Stjörnunni, Jóhannes Björgvin leikur ekki fleiri leiki á tímabilinu. Þetta staðfesti Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Handkastið. Jóhannes Björgvin tognaði á kálfavöðva á æfingu í síðustu viku og verður frá keppni í allt að tvo til þrjá mánuði og þar með er ljóst að Jóhannes leikur ekki með Stjörnunni í síðustu leikjum tímabilsins. Stjarnan heimsækir ÍR í 21.umferð deildarinnar í kvöld þegar heil umferð fer fram. Jóhannes sem gekk í raðir Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil meiddist einnig fyrir áramót og missti af töluvert af leikjum þá. Hann hefur hinsvegar spilað einkar vel þá leiki sem hann hefur spilað í vetur en hann er með 100% skotnýtingu í Olís-deildinni í vetur. Jóhannes hefur skorað 16 mörk úr 16 skot tilraunum sínum sem verður að teljast ansi góð tölfræði og er þetta því mikið áfall fyrir Stjörnumenn en Jóhannes missti af leik liðsins gegn KA á föstudagskvöldið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.