Tournat áfram hjá Nantes til 2030
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Franski landsliðsmaðurinn og leikmaður Nantes í heimalandinu, Nicolas Tournat hefur framlengt samningi sínum við Nantes til ársins 2030. Félagið tilkynnti þessi tíðindi í gær.

Tournat sem er uppalinn hjá Nantes lék hjá Kielce í Póllandi á árunum 2020-2024 en eftir það gekk hann aftur í raðir Nantes. Nú er ljóst að hann ætlar að halda áfram vegferð sinni hjá uppeldisfélaginu.

Tournat hefur verið algjör lykilmaður bæði hjá Nantes og í franska landsliðinu að undanförnu en Nantes fór alla leið í Final 4 í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð. Hann hefur spilað tæplega 120 landsleiki fyrir franska landsliðið og hefur unnið til fimm verðlauna á stórmótum. Línumaðurinn er fæddur árið 1994 og verður 32 ára í næsta mánuði.

Nantes er á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar með 35 stig, jafn mörg stig og PSG en Parísar liðið á leik til góða. Ennþá eru ellefu umferðir eftir af frönsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top