Tæplega hálfu ári eftir alvarleg meiðsli í öxl er hægri hornamaðurinn í liði Álaborgar, Patrick Wiesmach nú nálægt því að snúa aftur á völlinn. Hann meiddist illa á öxl í Meistaradeildarleik á útivelli gegn norska liðinu Kolstad í byrjun október á síðasta ári. Eftir það fór hann í aðgerð og síðan tók við langt endurhæfingar tímabil. Nú virðist sá kafli vera að nálgast endalok. Í kjölfarið samdi Álaborg við Alec Smit sem var án félags en búsettur í Danmörku en Hollendingurinn varð fyrir því óláni að slíta krossband á dögunum. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Álaborg gengur endurhæfingin vel hjá Wiesmach og er hann sagður væntanlegur aftur á völlinn hvað úr hverju. Patrick Wiesmach er 35 ára danskur hægri hornamaður sem fagnar 36 ára afmæli sínu 23.mars næstkomandi. Hann gekk í raðir Álaborgar sumarið 2023 eftir fimm ár hjá SC DHfK Leipzig í Þýskalandi. Hann er alinn upp hjá Álaborg og hefur leikið tæplega 30 landsleiki fyrir danska landsliðið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.