FH vann góðan sigur á ÍR í kvöld, 34-28 eftir jafnan leik framan af en í upphafi síðari hálfleiks náðu heimamenn þriggja marka forystu sem gestirnir náðu aldrei að minnka nógu mikið niður. Það var vitað fyrir leik að ef FH myndi vinna og Valur tapa stigi myndu FH-ingar tryggja sér deildarmeistaratitilinn og á sama tíma ef ÍR myndi vinna og Stjarnan tapa fyrir Fram myndu ÍR-ingar sleppa við fall og koma sér í umspil um að halda sér uppi. Gestirnir úr Breiðholti voru flottir í byrjun leiks og bitu vel frá sér, virkaði eins og það væri ákveðið stress í ungu liði FH og þeir voru hægt af stað. Staðan jöfn í hálfleik, 17-17. En FH róaði sig niður í hálfleiknum og sýndu yfirvegun og nýttu þá reynslu sem þeir hafa innanborðs, voru fljótir að ná sér í þriggja marka forystu sem þeir náðu að bæta í undir lokin og unnu að lokum öruggan sigur, 34-28. Markahæstur í liði FH var Gunnar Kári Bragason með sex mörk úr sex skotum og Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði einnig sex mörk en þurfti tólf skot til þess. Jón Þórarinn Þorsteinsson kom frábærlega inn í markið og varði þrettán skot af þeim tuttugu og fjórum sem hann fékk á sig eða 54% markvarsla og Daníel Freyr Andrésson var með 26% markvörslu. Hjá gestunum var Jökull Blöndal Björnsson flottur með tólf mörk úr tuttugu skotum og Alexander Ásgrímsson sem var í markinu meirihluta leiksins var með sjö varin af þrjátíu og fjórum eða 21% markvörslu, Ólafur Rafn Gíslason fékk smá tækifæri í lokin og varði sex af tíu skotum eða 60% markvörslu. Úrslit kvöldsins þýða að FH endar í öðru sæti og mætir Íslandsmeisturum Fram í átta liða úrslitum Íslandsmótsins á meðan ÍR-ingar þurfa bíta í það súra epli að falla niður um deild. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.