Selfoss og Afturelding skildu jöfn í hörkuleik á Selfossi en úrslitin réðust í lokin þegar gestirnir fengu dæmt á sig sóknarbrot í seinustu sókn sinni. Lokatölurnar urðu 27-27. Selfyssingar vissu það fyrir leik að þeir gætu þurft stig eða tvö til að gulltryggja sæti sitt í deildinni en Stjarnan gat ennþá farið upp fyrir þá ef þeir myndu vinna Fram í kvöld. Fyrir gestina var minna í húfi en samt sem áður eitthvað þar sem þeir gátu farið upp eða niður um sæti en þeir voru þó öruggir með sæti í úrslitakeppnina. Gestirnir fóru gríðarlega vel af stað í kvöld og leiddu meðal annars með fimm mörkum eftir korter en staðan í hálfleik var 13-17 fyrir Aftureldingu. Heimamenn komu þó grimmari til leiks eftir hálfleikinn og eftir 44 mínútur var staðan orðin jöfn, 20-20 og Selfoss hélt áfram og komst meðal annars í þriggja marka forystu þegar minna en tíu mínútur voru eftir. Þá fór sóknin að hiksta og gestirnir náðu að minnka muninn og á endanum að jafna leikinn áður en þeir fengu tækifæri til að vinna en því miður var dæmt sóknarbrot í seinustu sókn þeirra og lokatölurnar 27-27. Markahæstur hjá heimamönnum var Hannes Höskuldsson með sjö mörk úr ellefu skotum og Alexander Hrafnkelsson varði ellefu skot af þeim þrjátíu og sjö sem hann fékk á sig eða um 30% markvarsla en hjá gestunum skoraði Oscar Lykke einnig sjö mörk en úr þrettán skotum og Einar Baldvin Baldvinsson varði sjö skot af tuttugu og sex eða 27% markvarsla. Úrslitin þýða það að Afturelding endar í sjötta sæti deildarinnar og mætir Haukum í átta liða úrslitum Íslandsmótsins á meðan Selfoss endar í tíunda sætinu og eru komnir í sumarfrí. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.