Jafntefli í baráttunni um Akureyri
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þór og KA mættust í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þór var fyrir leik kvöldsins öruggt með sæti í Olís deild karla að ári en var þó í möguleika að komast í úrslitakeppnina en til þess þurfti liðið að vinna og HK að tapa. KA var í baráttu um heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni og þurfti liðið sigur til að eiga möguleika á því.

Fyrri hálfleikurinn var gríðarlega kaflaskiptur. KA byrjaði leikinn betur og komust þremur mörkum yfir í byrjun leiks en Þórsarar náðu að koma til baka en KA menn náðu aftur að taka yfir leikinn og voru yfir í hálfleik 15-17. Síðari hálfleikurinn var jafn og Þór náði góðu áhlaupi og endaði leikurinn með 31-31 jafntefli.

Með jafnteflinu eru Þórsarar komnir í sumarfrí á meðan KA endaði í fimmta sæti deildarinnar sem náði ekki að gefa liðinu heimavallarréttinn.

Atkvæðamestir í liði Þórs voru Brynjar Hólm Grétarsson og Hákon Ingi Halldórsson báðir með átta mörk. Línumennirnir tveir Kári Kristjánsson og Þórður Tandri Ágústsson skoruðu báðir fjögur mörk og aðrir minna.

Atkvæðamestur í liði KA var Einar Rafn Eiðsson með tólf mörk. Giorgi Arvelodi skoraði sjö mörk. Dagur Gautason fjögur og aðrir minna.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top