Eyjamenn tóku á móti Val í lokaleik Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í dag. Með sigri í leiknum myndi Valur tryggja sér deildarmeistaratitilinn. ÍBV mættu laskaðir til leiks í dag en liðið var án margra lykilmanna. Dagur Arnarsson, Andri Erlingsson, Hákon Daði Styrmissson og Petar Jokanovic voru allir fjarverandi og er það ekki einu sinni upptalið þá. Fyrirfram var því búist við auðveldum leik hjá Val en það varð ekki raunin og gáfu ÍBV þeim góða mótspyrnu eins og þeim einum er lagið. ÍBV byrjaði leikinn betur en Valsmenn náðu undirtökunum um miðbik fyrri hálfleiks. ÍBV náði þó aftur frumkvæðinu en liðin voru jöfn, 16-16, þegar þau gengu til búningsherbergja. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleik betur en Valsmenn náðu þó frumkvæðinu fljótlega og létu það aldrei af hendi enda var farið að draga af leikmönnum ÍBV sem spiluðu nánast allan leikinn bæði í vörn og sókn. Vörn Valsmanna small í síðari hálfleik og Björgvin Páll sem fann sig ekki í fyrri hálfleiknum fór í gang og varði til að mynda fjögur víti og skoraði 2 mörk yfir allan völlinn. Með sigrinum tryggði Valur sér deildarmeistaratitilinn í ár og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. ÍBV enda í fjórða sæti deildarinnar og fá heimaleik gegn KA í átta liða úrslitum en Valsmenn mæta HK. Kristófer Ísak Bárðarson var markahæstur ÍBV í kvöld með 8 mörk en hjá Val var Arnór Snær Óskarsson markahæstur með 11 mörk. Handkastið óskar Valsmönnum til hamingju með deildarmeistaratitilinn. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.