HK og Haukar mættust í loka umferð Olís deilda karla en um var að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir bæði lið en HK þurfti sigur til að gulltryggja sig í úrslitakeppnina og Haukar voru enþá í séns á að vinna deildarmeistaratitilinn en til þess þyrfti bæði FH og Valur að tapa. HK byrjaði leikinn gríðarlega vel og leiddu í hálfleik með fimm mörkum 15-10. HK héldu einbeitingu í síðari hálfleik og náðu að landa sigri 26-23 sem þýðir að liðið endar í áttunda sæti deildarinnar og leikur í úrslitkeppni Olís deildarinnar. Atkvæðamestir hjá HK í kvöld voru Ágúst Guðmundsson, Andri Þór Helgason, Haukur Ingi Hauksson og Sigurður Jefferson allir með fimm mörk. Orfeus Andreou var svo með fjögur mörk og aðrir minna. Brynjar Vignir Sigurjónsson var frábær í marki HK í kvöld og varði 16 skot. Atkvæðamestur í liði Hauka var Freyr Aronsson en hann skoraði sjö mörk. Hergeir Grímsson skoraði fjögur. Brynjólfur Snær og Skarphéðinn Ívar skoruðu báðir þrjú mörk og aðrir minna. Grétar Ari Guðjónsson varði sjö skot í marki gestanna. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.