Stjarnan og Fram mættust í Garðabænum í kvöld og þurfti liðið á sigri að halda til að sleppa við fallumspilið og treysta á að Selfoss tapi sínum leik. Stjarnan byrjaði leikinn gríðarlega vel og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik 14-10 en Framarar komu til baka í síðari hálfleik og lönduðu tveggja marka sigri 24-26. Úrslitin þýða að Stjarnan fer í umspil um hvort liðið leiki í Olís deildinni að ári eða ekki. Fram endar tímabilið í sjöunda sæti deildarinnar. Atkvæðamestur í liði Stjörnunnar var Hans Jörgen Ólafsson með tíu mörk. Benedikt Marinó skoraði fimm og Ísak Logi Einarsson þrjú, aðrir skoruðu minna. Atkvæðamestur í liði Fram var Rúnar Kárason með fimm mörk. Arnþór Sævarsson, Kjartan Júlíusson og Max Emil Stenlund skoruðu allir fjögur mörk, aðrir skoruðu minna. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.