Spánverjinn ungi, Marcos Fis sem sló í gegn á Evrópumótinu í janúar er talinn eftirsóttur af mörgum félögum fyrir næsta tímabil en hann er leikmaður Granollers á Spáni í dag. Marcos Fis sem er fæddur árið 2007 gekk í raðir Granollers fyrir tímabilið. Samkvæmt spænska staðarblaðinu Mundo Deportivo eru að minnsta kosti tíu félög í Evrópu sem hafa áhuga á Fis og þar á meðal eru nefnd félög á borð við spænsku risanna í Barcelona, THW Kiel, Veszprém og pólska liðið Kielce. Auk Sporting og PSG. Marcos Fis var sjötti markahæsti leikmaður Spánar á Evrópumótinu í janúar með 19 mörk á sínu fyrsta stórmóti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.