Danska úrvalsdeildarfélagið, Fredericia hefur ráðið nýjan þjálfara sem tekur við liðinu frá og með næsta sumri. Sá sem tekur við liðinu er fyrrum þjálfari Skjern, Mathias Madsen sem var rekinn sem þjálfari liðsins snemma á þessu tímabili. ,,Þetta er þýðingarmikið fyrir mig. Eftir að ég hætti hjá Skjern í haust varð fljótt leiðinlegt að vera heima svo að koma aftur inn eru virkilega stórt skref fyrir mig. Þetta er stórt félag og ég er mjög ánægður að Fredericia hafi litið til mín," sagði Mathias Madsen þegar félagið tilkynnti hann sem nýjan þjálfara félagsins. ,,Þetta er félag með mikla hefð. Þeir hafa það markmið að vera á toppnum næstu árin. Þetta er spennandi hópur með hæfileikaríkum handboltamönnum," sagði Mathias Madsen við TV 2 Sport. Þangað til Madsen tekur við liðinu munu Jesper Houmark og Michael Wollesen halda áfram sem tímabundið þjálfarateymi út tímabilið og snúa aftur til fyrri starfa sinna eftir það en þeir tóku við liðinu eftir að Guðmundur Þórður Guðmundsson var sagt upp störfu hjá félaginu fyrir áramót. Fredericia er í 8.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 20 stig þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Ringsted er einungis einu stigi á eftir Fredericia.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.