Mætast tvívegis á fimm dögum í sitthvorri keppninni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Það er ekki oft sem þýsk félagslið mætast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og hvað þá í aðdraganda þess að sömu lið mætast í deildarkeppni nokkrum dögum síðar. Það er hinsvegar raunin hjá Kiel og Flensburg sem mætast í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld klukkan 19:45.

Leikurinn í kvöld skiptir engu máli nema stoltið því Kiel eru á toppi riðilsins með 10 stig en Flensburg er í 2.sæti með sex stig. Montpellier er í 3.sætinu með fjögur stig en geta ekki farið upp fyrir Flensburg.

Danski landsliðsmaðurinn Simon Pytlick leikmaður Flensborgar segir að þrátt fyrir að það sé alltaf áhugavert að mæta þýsku liði í Evrópukeppni þá sé leikurinn á laugardaginn milli liðanna í þýsku úrvalsdeildinni töluvert mikilvægari fyrir bæði lið.

,,Það er alltaf sérstök stemning í derby-leikjum en við verðum að hugsa um það sem skiptir mestu máli fyrir liðið,“ sagði Pytlick en Flensburg er í 2.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 39 stig, fimm stigum á eftir Magdeburg sem er á toppi deildarinnar. Tvö efstu sæti deildarinnar gefa sæti í Meistaradeild Evrópu en Füchse Berlin er ekki nema einu stigi á eftir Flensburg.

Vegna fjölgunar liða í Meistaradeildinni á næstu leiktíð gæti þá vel farið svo að þýska úrvalsdeildin fái þrjú sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Kiel er í 5.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 34 stig en Gummersbach er stigi á eftir í sætinu fyrir neðan. Þeir mega því ekkert við því að misstíga sig gegn Flensburg á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top