Markahæstu leikmenn Evrópudeildarinnar fyrir lokaumferðina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Átta leikir fara fram í Evrópudeild karla í kvöld þegar lokaumferðin í milliriðlum Evrópudeildarinnar verður leikin.

Hannover Burgdorf og Kiel eru einu liðin sem hafa nú þegar unnið sér sæti í 8-liða úrslit keppninnar en mikil spenna er í tveimur riðlum um efsta sætið í riðlunum.

Vardar og Melsungen mætast en bæði lið eru með sex stig í sínum riðli. Sigurvegarinn úr þeim leik fer beint í 8-liða úrslitin. Í milliriðli tvö eru þrjú lið með sex stig, Skanderborg, Elverum og Porto en Skanderborg mætir Porto á meðan Elverum mætir Granollers sem er á botninum með tvö stig.

Hér að neðan má sjá lista yfir 10 markahæstu leikmönnum Evrópudeildarinnar.

  1. Luca Sigrist (HC Kriens) - 50 mörk
  2. Mads Andersen (Fredericia) - 46 mörk
  3. Marko Grgic (Flensburg) - 46 mörk
  4. Nemania Ilic (Toulouse) - 45 mörk
  5. Jaka Malus (Vardar) - 44 mörk
  6. Levin Wanner (Bern) - 44 mörk
  7. Leon Ljevar (Slovan) - 44 mörk
  8. Bence Nagy (FTC) - 42 mörk
  9. Antonio Martinez (Porto) - 41 mark
  10. Dmytro Horiha (Vardar) - 41 mark

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top