Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 19.umferð fari í Olís deild kvenna. Haukar – ÍBV (Laugardagur 13:00) / Sigurvegari: ÍBV Liðin hafa bæði átt góðu gengi að fagna í undanförnum leikjum. ÍBV sjá möguleikann á að Valur gæti misstigið sig eftir að Hafdís meiddist í landsleikjunum og Þórey Anna spilar einnig ekki meira á tímabilinu. ÍBV mun halda sínu góða gengi áfram og sigra Haukana í dag. Selfoss – Stjarnan (Laugardagur 14:00) / Sigurvegari:Stjarnan Botnbaráttan gæti ráðist í dag. Stjarnan fer austur fyrir fjall og sækir Selfyssinga heima. Það er allt undir fyrir bæði lið í baráttunni um að ná í umspilssæti. Mér finnst bragurinn á Stjörnunni hafa verið betri undanfarnar vikur og ég held þær sigri Selfoss í dag og stigi stórt skref í að tryggja sér umspilssætið. Valur – Fram (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: Valur Er Hafdís ennþá frá vegna meiðsla? Þórey Anna er komin í frí frá handbolta. Það er tækifæri fyrir önnur lið að stríða toppliði Vals. Breiddin í liðinu er þó mikil og þær munu fylla í þessi skörð og vinna Fram í dag og stíga skref í átt að deildarmeistaratitlinum. ÍR – KA/Þór (Laugardagur 15:15) / Sigurvegari: ÍR ÍR er ennþá að eltast við þetta 3.sæti í deildinni og með sigri á KA/Þór og hagstæðum úrslitum á Ásvöllum gætu þær náð því. KA/Þór er að eltast við Fram í 5.sætinu svo það er mikið undir fyrir bæði lið. ÍR er hægt og rólega að finna sitt gamla form aftur og munu sýna sparihliðar sínar í dag sigra KA/Þór. 18.umferð (3 réttir)
17.umferð (4 réttir)
16.umferð (3 réttir)
15.umferð (4 réttir)
14.umferð (4 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (3 réttir)
11.umferð (3 réttir)
10.umferð (3 réttir)
9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.