Skilur ekki hvernig handboltinn á Íslandi er skipulagður
{{brizy_dc_image_alt entityId=

,,Það eru nokkur atriði sem ég skil ekki alveg þegar kemur að því hvernig handboltinn hér á Íslandi er skipulagður," sagði Norðmaðurinn, Daniel Birkelund þjálfari Þórs í samtali við Handkastið en hann undirbýr lið sitt nú fyrir lokaleik Olís-deildar karla sem fram fer á morgun, 12.mars gegn nágrönnunum í KA.

Já þið lásuð rétt, lokaumferðin í Olís-deild karla fer fram 12.mars eða fimm vikum eftir að Olís-deild karla fór aftur af stað eftir rúmlega sjö vikna pásu í desember og janúar. Leikmenn þriggja liða af tólf í Olís-deild karla eru því komnir í sumarfrí þegar þeir vakna 13.mars eftir lokaumferðina. Leikmenn þeirra liða sem enda í neðsta sæti deildarinnar, 10. og 9.sæti.

15 deildarleikir fyrir jól - Sjö eftir áramót

,,Við spilum 15 deildarleiki fyrir jól og sjö eftir áramót. Eftir áramót hefur þetta verið þannig að þrír fyrstu leikirnir voru spilaðir á níu dögum og síðan kom viku frí. Í kjölfarið var ein umferð spiluð og síðan var farið í tólf daga frí fyrir þau lið sem ekki komust í undanúrslit Powerade-bikarsins, Final 4. Svo eru spilaðir þrír leikir á átta dögum og síðan er deildarkeppninni lokið. Tvær síðustu umferðirnar þar sem mikið er undir og öll lið hafa að einhverju að keppa eru þjappaðar inn á fjóra daga," sagði Daniel Birkelund sem er í harðari baráttu um sæti í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins en til þess þarf hann að vinna KA annað kvöld og treysta því að Haukar vinni HK.

Annars er hann og hans lið komið í sumarfrí, langt sumarfrí og gæti verið tæplega sex mánuðir í næsta deildarleik Þórs.

,,Eins og ég sé þetta er engin sérstök ástæða fyrir því að þurfa að klára mótið núna. Það hefði alveg verið hægt að spila til dæmis eina umferð minna fyrir áramót og spila svo tvær umferðir eftir landsliðshléið núna. Við erum ein af fáum evrópskum deildum sem klárar svona snemma. Í Svíþjóð, Danmörku og Noregi sem allar eru með úrslitakeppni er deildarkeppnin kláruð eftir hlé."

Afhverju er lokaumferðin ekki um helgina?

Daniel bendir síðan á að fyrst það er vilji fyrir því að klára Íslandsmótið fyrir landsleikjahléið sem framundan er, þá skilur hann ekki afhverju lokaumferðin fari ekki fram um helgina.

,,Af hverju ekki um helgina – föstudag eða laugardag? Jú, það er landsliðshlé í næstu viku en allar aðrar deildir spila um helgina. Það er líka aðeins einn leikmaður úr íslensku deildinni sem fer á landsliðsverkefni með A-landsliðinu í næstu viku. Í Bundesligunni er til dæmis spilað föstudag, laugardag og sunnudag," sagði Daniel og bendir á að Íslendingarnir í Magdeburg spila seinni partinn á sunnudaginn og koma svo til Íslands í landsliðsverkefni á mánudag.

Hann bendir á að Þór og FH séu sett í slæma stöðu í aðdraganda lokaumferðarinnar þar sem bæði lið þurftu að ferðast heim eftir leikinn á mánudagskvöld og komu heim seint um nóttu aðfaranótt þriðjudags, tveimur dögum fyrir lokaumferðina.

,,Þegar svo er ákveðið að klára tímabilið með leikjum mánudag og fimmtudag er mánudagsumferðin sett á með leikjum sem byrja klukkan 19:30. Það er auðvitað gott að leikirnir í síðustu umferð fari fram á sama tíma. En þegar leikurinn byrjar svona seint skapar það aukið og í raun óþarfa álag fyrir þau lið sem þurfa að ferðast langt – eins og í þessu tilfelli okkur og FH. Fyrir okkar part þýddi þetta að við vorum ekki komin heim fyrr en klukkan 03:30 aðfaranótt þriðjudags."

Finnst margt einfaldlega lítið ígrundað

,,Ég skil vel að það séu mörg sjónarmið sem þarf að taka tillit til og að hlutirnir geti ekki alltaf verið fullkomnir að minnsta kosti ekki fyrir alla. En mér finnst samt vera svo margt hér á Íslandi sem virðist einfaldlega lítið ígrundað og sem ætti að vera frekar auðvelt að laga á hátt sem væri líklega betri fyrir flesta. Ef ég væri með hlaðvarp sem fjallaði um íslenskan handbolta, þá væri þetta klárlega umræðuefni sem ég myndi taka upp," sagði Daniel Birkelund þjálfari Þórs að lokum í skemmtilegu samtali við Handkastið en Daniel er á sínu fyrsta ári sem þjálfari á Íslandi en hann tók við Þórsliðinu síðasta sumar.

Þór sem eru nýliðar í deildinni tryggðu sér áframhaldandi sæti í Olís-deildinni fyrir næstu leiktíð með sigri á Aftureldingu í síðustu umferð.

Hver veit nema Handkastið taki þessa umræðu í næsta þætti og bendi enn og aftur á vankanta hjá HSÍ.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top