FH var einu jafntefli frá því að vera deildarmeistari
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Olís-deild karla lauk á fimmtudagskvöldið þegar Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn eftir sex marka sigur á ÍBV á útivelli 34-28. FH vann ÍR á heimavelli á sama tíma og tryggði sér 2.sætið í deildinni og felldi ÍR á sama tíma.

Í nýjasta uppgjörsþætti Handkastins benti Stymmi klippari á að FH hafi einungis verið einu jafntefli frá því að verða deildarmeistarar en FH endaði Olís-deild karla á níu sigurleikjum í röð.

,,FH endar í 2.sæti einu stigi á eftir Val. Það munar einu jafntefli á þeim og þá er manni minnistætt jafnteflið hjá FH gegn Þór þegar FH var átta mörkum yfir í leiknum. FH átti innbyrðis gegn Val svo þetta jafntefli reyndist FH-ingum dýrt þegar upp var staðið. Ef FH hefði orðið deildarmeistari það hefði verið sturlað fyrir fram," sagði Stymmi klippari.

Einar Ingi Hrafnsson sem var gestur í Handkastinu tók undir með Klipparanum.

,,Það bjóst enginn við því að Ómar Darri myndi stíga jafn mikið upp eins og hann hefur gert. Hann hefur verið frábær og ásamt Garðari Inga verið jafnbesti leikmaður FH á tímabilinu.”

,,Ég hefði skrifað það sem þjálffræðilegt afrek ef það hefði gert," bætti Stymmi klippari við.

FH mætir Íslandsmeisturum Fram í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem hefst 25.mars.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top