Þýsku meirstarnir í Füchse Berlin fylgist samkvæmt miðlinum RThandball grannt með svissneska línumanninum Joel Williecke leikmanni TBV Lemgo Lippe með möguleg félagaskipti sumarið 2027 í huga. Samkvæmt RThandball hefur Berlínar-liðið beint sjónum sínum að 22 ára svissneska línumanninum Joel Williecke, sem hefur vakið athygli með frammistöðu sinni hjá Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í vetur en Lemgo er spútnik lið tímabilsins til þessa. Williecke hefur gert það gott í Bundesligunni með Lemgo og samkvæmt upplýsingum fylgist Füchse Berlin. Williecke gekk í raðir Lemgo fyrir tímabilið frá svissneska félaginu Suhr Aarau. Hann á rúmlega 30 landsleiki að baki fyrir svissneska landsliðið en hann skoraði meðal annars tvívegis í jafntefli Sviss gegn Íslandi á Evrópumótinu í janúar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.