Nú eru aðeins 2 leikir eftir í Grill 66 deild kvenna þetta tímabilið. Lengi vel voru HK stelpur í bílstjórasætinu um að fara beint upp en þeim fataðist síðan flugið. Fyrir síðustu umferð var Grótta með pálmann í höndunum. Þær þurftu bara að klára sitt og þá var Olís deildar sætið þeirra. En í síðustu umferð á föstudagskvöldið var töpuðu Gróttu stelpur óvænt á heimavelli á móti FH liði sem spilaði frábærlega. Í millitíðinni vann HK sinn leik og eru því komnar aftur upp í toppsætið með 34 stig á meðan Grótta er með 32 stig. Grótta á eftir að spila við Fjölni á útivelli í Egilshöll þriðjudagskvöldið 17. mars og við Fram 2 á heimavelli sunnudaginn 22. mars. HK á eftir að spila við FH á útivelli í Krikanum þriðjudagskvöldið 17. mars og við Fjölni á heimavelli sunnudaginn 22. mars. Það verður áhugavert að sjá hvernig lokaspretturinn spilast og hvort það verði Grótta eða HK sem fari beint upp í Olís deildina og hvort liðið fari í umspilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.