Ísland og Svíþjóð mætast tvívegis í æfingaleikjum hér á landi í vikunni. Fyrri leikur þjóðanna fer fram á Hlíðarenda á fimmtudaginn klukkan 19:30 og seinni leikurinn fer fram í Kaplakrika á laugardaginn klukkan 17:00. Ísak Steinsson markvörður í Drammen þurfti að draga sig úr landsliðshópnum fyrir komandi leiki í gærkvöldi vegna meiðsla. Aðrir leikmenn sem Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi í verkefnið eru heilir heilsu. Michael Apelgren þjálfari sænska landsliðsins hefur hinsvegar neyðst til þess að gera þrjár breytingar á leikmannahópi sínum vegna meiðsla. Um er að ræða þá Jonathan Carlsbogård leikmann Barcelona, línumanninn Max Darj hjá Füchse Berlín og hægri skyttuna Sebastian Karlsson leikmann PSG. Inn í hópinn koma þeir Hugo Stuivers leikmaður HK Malmö og liðsfélagi hans Isak Persson. Stuivers er línumaður og Isak Persson er hægri skytta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.