Þýski handknattleiksþjálfarinn Jaron Siewert hefur greint frá því að hann hafi fengið sitt annað heilablóðfall í október á síðasta ári, aðeins 31 árs að aldri. Stuttu eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Füchse Berlín Jaron Siewert sem gerði Füchse Berlin að Þýskalandsmeisturum í fyrsta skipti í sögu félagsins á síðustu leiktíð opnaði sig um málið í viðtali við Dyn þar sem hann lýsir erfiðu tímabili eftir að hann var látinn fara frá félaginu snemma á þessu tímabili. Um tveimur mánuðum eftir brotthvarfið fékk hann annað heilablóðfall. ,,Ég var algjörlega niðurbrotinn og fór að efast um allt,“ sagði Siewert um áfallið. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann lenti í slíku áfalli, en hann fékk einnig heilablóðfall árið 2022. Að sögn lækna var streita ekki talin orsök seinna áfallsins. Þess í stað er talið að blóðþynnandi lyf, sem Siewert hafði fengið eftir fyrra áfallið, hafi spilað stórt hlutverk. Þetta kom mörgum á óvart, enda hefði verið eðlilegra að tengja slíkt við álag í starfi eða erfiða tíma í kringum brottrekstur hans. Siewert var látinn fara frá Füchse Berlin í september 2025, ásamt íþróttastjóranum Stefan Kretzschmar, þrátt fyrir að samningar þeirra væru enn í gildi. Athygli vakti að þetta gerðist þrátt fyrir að hann hefði stuttu áður samþykkt nýjan samning við félagið. Danski þjálfarinn, Nicolej Krickau tók við liðinu í kjölfarið og varð einnig íþróttastjóri félagsins og tók við því starfi af Stefan Kretzschmar. Þrátt fyrir þessi alvarlegu áföll segist Siewert nú vera tilbúinn að snúa aftur til þjálfunar. Hann hefur átt í viðræðum við nokkur félög, en þær viðræður fóru á ís eftir seinna heilablóðfallið. „Plan A er að verða aftur aðalþjálfari og standa á hliðarlínunni,“ sagði Siewert. Lyf talin líkleg orsök – ekki streita
Óvænt brotthvarf úr starfi
Vill snúa aftur á hliðarlínuna

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.