Yngri Dujshebaev bróðirinn semur við Melsungen
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Daniel Dujshebaev hefur gengið í raðir MT Melsungen og verður liðsfélagi Reynis Þórs Stefánssonar á næstu leiktíð. Hann gengur í raðir félagsins eftir langadvöl í Póllandi hjá Industria Kielce.

Eldri bróðir hans, Alex Dujshebaev gekk á dögunum í raðir Gummersbach og því er ljóst að bræðurnir verða mótherjar á næstu leiktíð í þýsku úrvalsdeildinni.

Skyttan spænska hefur skrifað undir þriggja ára samning við MT Melsungen sem tekur gildi í sumar. Daniel hefur lengi vel verið orðaður við MT Melsungen en hann var líka sterklega orðaður við Dinamo Bucuresti í Rúmeníu.

Forsvarsmenn MT Melsungen höfðu tjáð sig um að þeir myndu ekki tæma budduna til þess að klófesta Spánverjann. Þeir hafa hinsvegar ekki þurft þess því leikmaðurinn hefur nú samþykkt samningstilboð félagsins og mun leika með liðinu næstu þrjú árin.

Daniel er 28 ára gamall og hefur verið samningsbundinn Kielce frá árinu 2017. Hann lék eitt tímabil með Celje í Slóveníu á láni en hefur síðan leikið í Póllandi undanfarin ár.

Ljóst er að landsliðsmaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson yfirgefur MT Melsungen í sumar er samningur hans rennur út. Hann staðfesti þetta í viðtali við Handkastið í vikunni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top