Fimm danskir leikmenn gætu leikið sína fyrstu landsleiki á ferlinum í vikunni en danska landsliðið tekur þátt í fjögurra þjóða æfingamóti sem fram fer í Danmörku næstu daga. Ásamt Danmörku taka Hollendingar, Bandaríkin og Norðmenn þátt í mótinu en Nicolaj Jørgensen þjálfari danska landsliðsins valdi fimm leikmenn í danska hópinn að þessu sinni sem ekki hafa leikið landsleik áður. Um er að ræða þá Christoffer Bonde markvörð hjá Skjern, Victor Norlyk leikmann Mors-Thy, Frederik Bjerre hjá GOG, Steven Plucnar liðsfélaga Hauks Þrastarsonar hjá Rhein-Neckar Löwen og Nicolaj Jørgensen liðsfélaga Einars Þorsteins Ólafssonar hjá HSV Hamburg. Fyrsti leikur Evrópumeistarana í mótinu verður gegn Noregi á morgun. Á laugardaginn mæta þeir síðan Bandaríkjunum og á sunnudaginn verða Hollendingar mótherjar Evrópumeistarana. Óvissa ríkir um þátttöku Simon Pytlick í leikjunum en hann er að glíma við meiðsli og hefur ekki æft með danska landsliðinu í vikunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.