Slóvenski landsliðsmaðurinn og leikmaður Barcelona, Blaz Janc hefur undanfarna daga verið orðaður við nokkur stórlið í Evrópu en samningur hans við Barcelona er til sumarsins 2028. Meðal félaga sem Blaz Janc er orðaður við, er pólska stórliðið Wisla Plock sem er sagt vilja fá hann sumarið 2027. Blaz Janc hefur tjáð sig um orðróminn þar sem hann viðurkenndi að nokkur félög hafi haft samband við sig eða sinn umboðsmann. ,,Ég get ekkert tjáð mig um það hvaða félög það eru. Ég er ánægður í Barcelona og er með samning til ársins 2028. En enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér en það er ekkert sem ég sagt meira á þessari stundum," sagði Blaz Janc við slóvenska fjölmiðla. Blaz Janc hefur lengi verið orðaður við slóvenska félagið Slovan og þá hefur annað pólskt félag, Kielce verið í umræðunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.