Stymmi spáir í spilin: 21. umferð Olísdeildar kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 21.umferð fari í Olís deild kvenna.

ÍR – Selfoss (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: Selfoss

ÍR eru fastar í fjórða sæti deildinnar meðan Selfoss er ennþá í bullandi fallbaráttu við Stjörnuna. ÍR voru fáliðaðar í Vestmannaeyjum í vikunni og einhver meiðsli á leikmannahópnum. Grunar að Grétar Áki taki engar óþarfa áhættur í þessum leik og hvíli þá leikmenn sem þurfa á hvíldinni að halda. Ég held því að Selfyssingar tryggi örlög sín í deildinni sjálf og vinni þennan leik.

Haukar – Stjarnan (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: Haukar

Haukar hafa verið eitt heitasta lið landsins eftir áramót. Þær eru búnar að tryggja sér þriðja sætið í deildinni og mæta KA/Þór í úrslitakeppninni. Stjarnan er að berjast fyrir lífi sínu og þarf á stigi að halda í þessum leik og hagstæðum úrslitum hjá ÍR í leik þeirra gegn Selfoss. Þetta er þriðji leikurinn á viku og Haukar eru með meiri breidd en Stjarnan og munu sigra þennan leik og það mun því miður vera hlutskipti Stjörnunnar að kveðja Olís deildina eftir þetta tímabil.

Fram – KA/Þór (Sunnudagur 17:00)  /  Sigurvegari: Fram

Liðin í fimmta og sjötta sæti deildinnar að mætast í leik sem skiptir í raun og veru engu nema upp á stoltið. Það er spurning hvernig ferðalagið hefur gengið suður fyrir KA/Þór þar sem það hefur verið skítaveður á landinu undanfarna daga og leiknum frestað um sólarhring. Ég held að Fram klári þetta á heimavelli í tíðinda litlum leik þar sem bæði lið verða komin með hugann við úrslitakeppnina.

Valur – ÍBV (Laugardagur 28.mars 14:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

Þessum leik hefur verið frestað um viku þar sem ófært er milli lands og Eyja. Þessi leikur skiptir í raun og veru engu máli fyrir úrslit deildinnar og því ágætis niðurstaða að þessi 2 lið sem sitja hjá í fyrstu um ferð úrslitakeppninnar fái að færa leikinn sinn um viku. Það verður því allavegna viku pásu í það að Valskonur fái að lyfta deildarmeistaratitlinum en ÍBV mun hins vegar vinna þennan leik þar sem ég tel að Valur muni ennþá hvíla sína lykilmenn.

20.umferð (2 réttir)
19.umferð (2 réttir)
18.umferð (3 réttir)
17.umferð (4 réttir)
16.umferð (3 réttir)
15.umferð (4 réttir)
14.umferð (4 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (3 réttir)
11.umferð (3 réttir)
10.umferð (3 réttir)
9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top