Norska landsliðið mætti því hollenska í Golden League í gær. Noregur vann leikinn, 38-31, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 23-16. Leiksins verður kannski helst minnst fyrir afrek August Pedersen leikmanns Hannover-Burgdorf sem gerði sér lítið fyrir og skoraði 19 mörk í leiknum. Með þessum 19 mörkum var August að jafna 20 ára gamalt met sem Kjetil Stand setti gegn Íslendingum árið 2006. With 19 goals in today’s international match against the Netherlands, August Pedersen equalled the 20-year-old record for most goals in a single game for the Norwegian national team - originally set by Kjetil Strand at the 2006 European Championship against Iceland.#handball pic.twitter.com/mzV722dWVx

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.