Átta þjóðir tryggðu sér áfram í umspil fyrir HM 2026 um helgina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Átta þjóðir tryggðu sér farseðilinn í næstu umferð forkeppni heimsmeistaramótsins um helgina á heimsmeistaramótinu sem fram í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Óvæntustu úrslitin voru sennilega sigrar Tyrklands gegn Rúmeníu á útivelli 37-31 sem tryggði liðinu áfram úr einvíginu og þá er ekki hægt að horfa framhjá sigurs Ísraels gegn Georgíu en þrátt fyrir tap með tveimur mörkum í gærkvöldi fer Ísrael áfram úr einvíginu.

Alexander Petterson sem er aðstoðarþjálfari Lettlands þurfti að sætta sig við tap gegn Póllandi 33-25 í gær og samanlagt féllu þeir úr leik 66-49.

Forkeppni umspils HM karla síðari umferð:
Pólland – Lettland 33-25 (Pólland vann samanlagt 66-49)
Belgía – Grikkland 31-34 (Grikkland vann samanlagt 63-57)
Litáen – Serbía 24-33 (Serbía vann samanlagt 75-49)
Georgía – Ísrael 30-28 (Ísrael vann samanlagt 59-58)
Slóvakía – Úkraína 31-32 (Slóvakía vann samanlagt 58-56)
Rúmenía – Tyrkland 31-37 (Tyrkland vann samanlagt, 69-68)
Kósovó – Bosnía 33-29 (Bosnía vann samanlagt 63-54)
Svartfjallaland – Finnland 30-26 (Svartfjallaland vann samanlagt 66-58)

Þar með er ljóst hvaða þjóðir mætast í næstu umferð forkeppninnar sem er sú síðasta og munu þjóðirnar sem vinna næstu umferð tryggja sér farseðilinn á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi.

Næsta umferð umspilsins:

Slóvakía - Norður-Makedónía
Bosnía - Færeyjar
Tékkland - Frakkland
Sviss - Ítalía
Svartfjallaland - Slóvenía
Serbía - Ungverjaland
Spánn - Ísrael
Grikkland - Holland
Noregur - Tyrkland
Austurríki - Pólland

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top