Súr stemning í herbúðum Flensburg
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Danski landsliðsmaðurinn Simon Pytlick er greinilega ekki sáttur þessa dagana og það er ekki bara eitthvað smá nöldur.

Hann segir einfaldlega að hann upplifi svik frá vinnuveitendum sínum hjá SG Flensburg-Handewitt en hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2027 en þá liggur leið hans til Fuchse Berlín.

Pytlick hefur hins vegar gefið skýrt í skyn að hann vilji fara fyrr og það strax í sumar. Ummæli hans í viðtali við TV2 í Danmörku um helgina hafa heldur betur vakið athygli þar sem hann segist viðurkenna að hann vilji yfirgefa Flensburg strax í sumar.

,,Það hefur ýmislegt gerst og traustið hefur verið rofið," sagði Pytlick meðal annars.

Þrátt fyrir þetta segist hann samt ætla að leggja sig 100% fram á meðan hann er enn á mála hjá Flensburg en það er alveg ljóst að þetta samband er orðið frekar súrt. Málið snýst um að Simon Pytlick og Holger Glandorf framkvæmdastjóra Flensburg ber ekki saman varðandi núverandi samning hans við félagið sem hann gerði á síðustu leiktíð er hann samdi til ársins 2030.

Þar segir Pytlick hafa samþykkt að fjarlægja klásúlu úr samningi sínum sem hefði gert honum kleift að yfirgefa félagið sumarið 2026 þar sem hann hafði haft mikla trú á verkefnið undir stjórn Nicolej Krickau sem var þá þjálfari Flensburg en er í dag bæði þjálfari og íþróttastjóri Fuchse Berlín.

Krickau var hinsvegar rekinn úr starfi sem þjálfari Flensburg stuttu eftir að hann samþykkti nýja samninginn. Hann segist ekki vilja fara í smáatriði en geti staðfest að þessir atburðir sér stað eins og hann hafi lýst.

Holger Glandorf hefur hinsvegar bent á að Simon Pytlick hafi skrifað undir nýjan samning við félagið eftir að Nicolej Krickau hafi verið rekinn frá Flensburg og því eigi þessi rök við ekkert að styðja.

Á dögunum var sagt frá því að Flensburg hafi neitað 1,5 milljón evra tilboði Fuchse Berlín sem myndi gera þýsku meisturunum það kleift að fá leikmanninn strax í sumar. Simon Pytlick hefði ekki verið skemmt í kjölfarið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top