Úrslitin ráðast í oddaleik eftir sigur FH í tvíframlengdum leik
Sævar Jónasson

Það er ljóst að Íslandsmeistarabikarinn fer á loft á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld eftir sigur FH í stórbrotnum handboltaleik í Kaplakrika í kvöld þegar FH hafði betur gegn Val 37-36 eftir tvíframlengdan leik. Valur var yfir í einvíginu 2-1 og hafði getað tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld.

FH hafði tögl og hagldir í fyrri hálfleik og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik 19-15 en liðið komst í 5-1 í upphafi leiks og hélt forystunni allan fyrri hálfleikinn.

FH var með forystu nánast allan leikinn en Valur jafnaði metin í fyrsta skipti í stöðunni 24-24. 

Það benti allt til þess á lokamínútum leiksins að FH myndi knýja fram oddaleik en liðið var þremur mörkum yfir 29-26 þegar sex mínútur voru eftir af leiknum. Þá lokaði Björgvin Páll Gústavsson hinsvegar markinu og sagði hingað og ekki lengra og varði hvert skotið á fætur öðru. Jón Þórarinn gerði hvað hann gat í marki FH, varði meðal annars vítakast frá Arnóri Snæ og dauðafæri frá Gunni Róbertssyni í lokasókninni en það dugði ekki til.

Valur fór í 7 á 6 þegar rúmlega 10 sekúndur lifðu leiks og Arnór Snær skoraði jöfnunarmarkið fimm sekúndum fyrir leikslok. 13. mark Arnórs Snæs í venjulegum leiktíma en Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði níu mörk fyrir FH í venjulegum leiktíma. FH-ingar tóku leikhlé en náðu ekki að nýta sér síðustu sekúndurnar og framlengja þurfti leikinn en lokatölur 29-29 og ljóst að FH skoraði ekki mark síðustu sex mínútur leiksins.

Valur komst aldrei yfir í leiknum í venjulegum leiktíma.

Lítið var skorað í fyrri hálfleik framlengingarinnar en FH leiddu í hálfleik 31-30. FH-ingar voru skrefinu á undan alla framlenginguna og voru tveimur mörkum yfir þegar rúmlega 30 sekúndur voru eftir, í stöðunni 34-32. Arnór Snær Óskarsson minnkaði hinsvegar muninn úr vítakasti. FH fór í sókn þar sem Birgir Már Birgisson tapaði boltanum og Allan Norðberg var búinn að jafna metin nokkrum sekúndum síðar. FH keyrði upp í sína lokasókn en Björgvin Páll varði frá Birgi Má á lokasekúndum leiksins og framlengja þurfti því leikinn í annað sinn.

Það voru hinsvegar Valur sem höfðu undirtökin í fyrri hálfleik seinni framlengingarinnar og voru 34-36 yfir þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum. Ómar Darri Sigurgeirsson minnkaði hinsvegar muninn með skoti utan af velli rétt fyrir hálfleikinn og FH-ingar byrjuðu með boltann í seinni hálfleik.

Valsarar skoruðu ekki fleiri mörk í leiknum á meðan FH-ingar skoruðu tvö mörk í seinni hálfleik seinni framlengingarinnar og unnu leikinn með einu marki 37-36.

Vafasamt atriði átti sér stað rétt fyrir leikslok þegar Daníel Montoro virtist jafna metin fyrir Val í stöðunni 37-36 en dómarar leiksins dæmdu vítakast og vildu meina að Daníel hafi verið lentur. Arnór Snær Óskarsson steig á vítalínuna eftir að hafa skorað 15 mörk í leiknum en Daníel Freyr Andrésson sá við honum og tryggði FH sigurinn.

Oddaleikurinn fer fram á fimmtudagskvöldið á Hlíðarenda.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top