Íslandsmeistarar Fram eru komnir með bakið upp við vegg eftir tap gegn FH í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í Kaplakrika í kvöld. FH hafði betur með tveimur mörkum 28-26 þar sem Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður FH fór á kostum í markinu og var besti leikmaður vallarins. Ívar Logi var atkvæðamestur í liði Fram með sex mörk en Rúnar Kárason og Kjartan Þór Júlíusson skoraði fjögur mörk fyrir Fram. Alls skoruðu tíu leikmenn FH mörk í leiknum en Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæstur með sex mörk og Símon Michael Guðjónsson kom næstur með fjögur mörk. Fram var einu marki yfir í hálfleik 13-12 en Fram var 13-10 yfir stuttu fyrir hálfleik en FH skoraði tvö mikilvæg mörk undir lok fyrri hálfleiks. Í stöðunni 19-19 kom slæmur kafli hjá Fram þar sem FH skoraði fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 23-19. Framarar náðu aldrei að snúa því við og vann FH að lokum tveggja marka sigur 28-26. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.