Deildarmeistarnir þurftu framlengingu til að vinna HK
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Deildarmeistarar Vals tóku á móti HK í fyrstu umferð 8-liða úrslita um Íslandsmeistaratitil karla. 4876 dagar voru frá því að HK vann Val síðast en á kafla í leiknum leit allt út fyrir að sú bið væri á enda.

Það var jafnt á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik en Valur voru þó alltaf skrefinu á undan og leiddu í hálfleik 17-16. Valsarar hófu seinni hálfleikinn betur og komust í 20-17 en þá kom slæmur kafli hjá Ágústi Jóhannssyni og hans mönnum í Val og HK gekk á lagið og var allt í einu komið fimm mörkum yfir í stöðunni 21-26 þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum.

HK hélt forystunni allt þar til í stöðunni 30-31 en síðasta mark leiksins skoraði Arnór Snær Óskarsson þegar rúmlega tvær mínútur voru eftir af leiknum. HK-ingar fóru illa með tvö góð færi á loka mínútum leiksins og hvorugt liðanna náði að skora úr síðustu sóknum sínum í leiknum. Lokatölur því 31-31 og framlengja þurfti leikinn.

Í framlengingunni reyndust Valsmenn töluvert sterkari aðilinn og unnu fjögurra marka sigur, 42-38.

Markvarslan var ekki upp á marga fiska hjá báðum liðum í leiknum og var landsliðsmarkvörðurinn, Björgvin Páll Gústavsson meðal annars tekinn af velli um tíma í seinni hálfleik og það er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi. Björgvin endaði með 11 varða bolta, eða 25% markvörslu.

Arnór Snær Óskarsson fór hamförum í sóknarleik Vals og skoraði 12 mörk en hann skoraði sjö mörk úr fyrstu sjö skotum sínum. Gunnar Róbertsson kom næstur með sjö mörk og Andri Finnsson sex.

Hjá HK var Hjörtur Ingi Halldórsson og Ágúst Guðmundsson markahæstir með átta mörk og Andri Þór Helgason skoraði sex mörk úr sex skot tilraunum.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top