Íslandsmeistarar Fram frá síðustu leiktíð eru farnir í sumarfrí eftir að tap gegn FH á heimavelli 27-32 í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Garðar Ingi Sindrason var markahæstur í liði FH í kvöld með níu mörk og Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði átta. Daníel Freyr Andrésson varði níu skot og Jón Þórarinn sex í marki FH en FH-ingar höfðu tögl og haldir á leiknum allan leikinn en FH var fjórum mörkum yfir í hálfleik 11-15. Fram náði að minnka muninn í eitt mark í stöðunni 20-21 og aftur í stöðunni 23-24 en þá kom slæmur kafli sem reyndist liðinu dýrkeyptur. FH náði á stuttum tíma fimm marka forystu í stöðunni 24-29 og ljóst að Íslandsmeistarnir voru á leið í sumarfrí. Viktor Sigurðsson var markahæstur í liði Fram með sex mörk og Ívar Logi Styrmisson kom næstur með fimm mörk. Rúnar Kárason átti erfiðan dag og skoraði tvö mörk úr ellefu skot tilraunum. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.