Eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í einvíginu nokkuð sannfærandi jöfnuðu Aftureldingarmenn einvígið með sigri gegn bikarmeisturum Hauka í 8-liða úrslitum og ljóst að liðin mætast í oddaleik á fimmtudaginn næstkomandi. Með Einar Baldvin Baldvinsson í ham vann Afturelding fjögurra marka sigur 26-22 eftir að hafa verið yfir nánast allan leikinn. Staðan í hálfleik var 14-12 Aftureldingu í vil en Afturelding var mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleik 12-6. Gunnar Magnússon þjálfari Hauka hafði tekið tvö leikhlé eftir rúmlega 20 mínútna leik en lítið sem ekkert gekk hjá Haukaliðinu og reyndist Einar Baldvin þeim erfiður í markinu en Einar endaði með 18 varin skot, eða 45% markvörslu. Haukar hófu seinni hálfleikinn betur og komust tvívegis einu marki yfir en þá náðu heimamenn undirtökunum á ný og sigldu að lokum fjögurra marka sigri í hús. Harri Halldórsson og Ihor Kopyshynskyi voru markahæstir með fimm mörk fyrir Aftureldingu en hjá Haukum var Ólafur Ægir Ólafsson og Freyr Aronsson markahæstir með fjögur mörk. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.