Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer unnu lífsnauðsynlegan eins marks sigur á Einari Þorsteini Ólafssyni og félögum í Hamburg á útivelli í kvöld í fyrsta leik 26.umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur 35-24 fyrir Bergischer eftir jafna og spennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en undir lok leiks. Bergischer voru einu marki í hálfleik 18-17 en liðin skiptust á að vera með eins marks forystu út allan leikinn en Bergischer náði í fyrsta skipti þriggja marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 28-31. Moritz Sauter leikmaður Hamburg var markahæstur með tíu mörk en Soren Steinhaus var markahæstur í liði Bergischer með sjö mörk. Með sigrinum er Bergischer komnir með 14 stig í 15.sætinu, fjórum stigum meira en Wetzlar sem er í fallsæti deildarinnar ásamt Leipzig sem er með níu stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.