Samkvæmt heimildum Rthandall er þýska stórliðið Flensburg sem er í toppbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni um þessar mundir á höttunum á eftir portúgölsku bræðrunum, Martim og Francisco Costa sem báðir eru liðsfélagar Orra Freys Þorkelssonar í Sporting í heimalandinu. Flensburg blandar sér þar með í hóp stórra liða í evrópska handboltanum sem hafa áhuga á að fá þá til sín en Francisco Costa hefur meðal annars verið sterklega orðaður við Barcelona og er spænska félagið sagt vilja fá Kiko Costa til að fylla það skarð sem Dika Mem skilur eftir sig sumarið 2027. Portúgölsku handboltabræðurnir hafa vakið sívaxandi athygli á alþjóðlegum vettvangi með frammistöðu sinni á undanförnum árum bæði með Sporting og með portúgalska landsliðinu sem hefur náð frábærum árangri á síðustu tveimur stórmótum. Þeir eru taldir meðal efnilegustu leikmanna Evrópu og hafa gegnt lykilhlutverki í uppgangi portúgalska landsliðsins. Þrátt fyrir ungan aldur hafa Costa-bræðurnir þegar safnað mikilvægri reynslu á hæsta stigi, og allt bendir til þess að þeir muni halda áfram að láta til sín taka á komandi árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.