Casper Mortensen verður spilandi þjálfari á næstu leiktíð
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP

Danski vinstri hornamaðurinn, Casper Mortensen hefur skrifað undir þriggja ára samning við HC København, þar sem hann mun frá og með næsta tímabili taka að sér hlutverk spilandi þjálfara.

Tilkynnt var á dögunum að hann myndi yfirgefa herbúðir Hamburg en enginn virtist þó vita hvert hann væri að fara.

Félagið hafði áður tilkynnt að núverandi þjálfarateymi, Nicolaj Jensen og Andreas Mortensen myndi láta af störfum að tímabilinu loknu. Því hefur verið leitað að nýrri lausn, og þar kemur Mortensen inn sem lykilmaður í nýju teymi. Það staðfestir hann sjálfur í viðtali við TV2 Sport. 

Mortensen kemur með alvöru reynslu inn í liðið. Hann á að baki 131 landsleik, hefur unnið bæði Ólympíugull og heimsmeistaratitil, og þá hefur hann einnig lyft Meistaradeildarbikarnum einu sinni. Undanfarin ár hefur hann leikið í þýsku úrvalsdeildinni fyrir TSV Hannover-Burgdorf og HSV Hamburg. 

Nú liggur leiðin aftur til Kaupmannahafnar og það er alls ekki tilviljun. Mortensen ólst upp hjá FIF og lék síðar með Ajax København. Þessi tvö félög mynda einmitt grunninn að HC København í dag. 

HC København hefur átt erfitt uppdráttar í dönsku 1. deildinni og var í basli fyrir jól. En liðið hefur rétt úr kútnum, unnið fimm af síðustu sex leikjum, og er nú allt í einu komið í stöðu þar sem það getur bjargað sér frá falli. 

Síðasti leikur liðsins í deildinni fer fram á morgun þegar liðið mætir toppliði Skive. Verkefnið er einfalt: eitt stig gæti dugað til að halda sæti sínu – að því gefnu að Elitesport Vendsyssel tapi á sama tíma gegn Aarhus Håndbold.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top