Danska úrslitakeppnin framundan – HØJ í vondum málum
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Deildarkeppnin í Danmörku er lokið og framundan er átta lið úrslitakeppni þar sem átta efstu liðunum hefur verið skipt upp í tvo fjögurra liða riðla.

Deildarmeistarar Álaborg hefja riðlakeppnina með tvö stig og Skanderborg sem endaði í 2.sæti deildarkeppninnar hefja einnig riðlakeppnina með tvö stig í sínum riðli.

Í riðlinum með Álaborg er liðið sem endaði í 3.sæti, 5.sæti og 8.sæti en með Skanderborg í riðli eru liðin sem enduðu í 4.sæti, 6. og 7.sæti.

GOG sem endaði í 3.sæti byrjar með eitt stig og TTH Holstebro undir stjórn Arnórs Atlasonar hefja einnig leik með eitt stig eftir að hafa endað í 4.sæti í deildarkeppninni. Spiluð er tvöföld umferð áður en tvö efstu liðin í hvorum riðli fyrir sig fara í undanúrslit og svo loks bíður úrslitarimma þeirra lið sem hafa betur í undanúrslitunum.

Í febrúar birti undirritaður grein á Handkastinu þar sem hann velti fyrir sér hvort kominn væri tími á að breyta fyrirkomulaginu í úrslitakeppninni hér á landi og fara dönsku leiðina. Nú styttist í ársþing HSÍ og fróðlegt verður að sjá hvort eitthvað félag hér á landi leggi fram tillögu um breyta úrslitakeppni en mörgum finnst tímabilið of stutt hér á landi fyrir þau félög sem komast ekki í úrslitakeppnina og einnig fyrir þau félög sem gætu farið í sumarfrí í dag eða á morgun tapi liðin 2-0 í 8-liða úrslitunum.

Í dönsku leiðinni eru átta efstu liðin í það minnsta búin að vinna sér sinn þátttökurétt í sex leikjum í riðlakeppninni sem væri þá fjórum leikjum meira en mörg lið fá hér á landi. Með því gæti tímabilið verið að lengjast í 3-4 vikur fyrir liðin hér á landi.

Í 14 liða úrvalsdeild í Danmörku fellur eitt lið beint niður. Liðin í 9.-13.sæti fara hinsvegar öll í einn riðil þar sem neðsta liðin í þeim riðli fer í umspilsleik gegn liði úr 1.deildinni.

Þar hefja liðin í 9. og 10.sæti riðlakeppnina með tvö stig, 11. og 12.sætið byrja með 1 stig og 13.sætið byrjar riðlakeppnina með 0 stig en það er HÖJ Elite að þessu sinni sem er með 0 stig þegar riðlakeppnin um fall fer af stað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top